mánudagur, 15. október 2012

Haustfrí

Þessa vikuna er haustfrí í skólanum. Ég tók nú samt að mér að hafa nemendalykilinn af skólanum því ég ætla mér að eyða fríinu í skólanum :o/ Það er fullt að gera, og þar sem að ég varð pínu eftirá er ég að reyna að vinna það upp. Þegar jakkinn var loksins tilbúinn varð ég veik og er enn að jafna mig á hálsbólgunni og hóstanum. Ernir er lika að vinna þessa vikuna og því hef ég í rauninni ekkert betra að gera en að vera í skólanum og reyna að gera eitthvað af viti. Einbeitingin er samt ekki sú besta, en vonandi lagast það. Finnst allavega miklu betra að vinna þegar stelpurnar eru ekki í skólanum....
Það voru teknar myndir af mér í jakkanum mínum og tveimur kjólum í skólanum á fimmtudaginn. Ég fæ þær vonandi í næstuviku og þá get ég kannski sýnt ykkur.
Annars er voðalega lítið að frétta, og þar af leiðandi hef ég ekkert að skrifa um í þetta skiptið :o/

Vona að þið hafið það sem allra best
Kv. Tinna

2 ummæli:

ella sagði...

Þvældist hér inn af síðunni hennar Nönnu frænku minnar. Sé að við eigum afar margt sameiginlegt.

Tinna Rut sagði...

Vá en gaman Ella :o) Þér er velkomið að fylgjast með ef þú hefur áhuga ;o)