Annar vasinn á jakkanum mínum. Blúnda, leður og bling bling
Í síðustu viku var útsala í einni búð sem er eins og ein verslunarmiðstöð. 3 hæðir og þú getur keypt nánast allt þarna. Sumir voru virkilega að nýta sér tilboðin og það voru nokkrir sem voru á fullu að finna jólagjafir. Ég komst allavega í smá jólafíling sem var sem betur fer fljótur að fara aftur.
Ég ákvað að nýta mér tækifærið og keypti perlur á hálfvirði og prófaði að bræða þær í ofninum. Ein af föndurbloggurunum sem ég fylgist með gerði svona fyrir örugglega ári síðan og núna ákvað ég að láta verða af því að prófa sjálf.
Útkoman var þessi litla skál :o)
Annars er allt fínt að frétta af okkur. Ernir er enn að vinna og finnst það frekar leiðinlegt að það er bara tvær og hálf vika eftir af starfsnáminu. Hann er í góðum gír þarna og langar helst ekkert að fara í skólann aftur. Ég berst áfram í stríði við sjálfa mig og veit að dagarnir fljúga áfram....
2 ummæli:
Þetta ætlar ekki að ganga vel hjá mér en vonandi tekst þetta í lokin hjá mér Kveðja Kalla
Vasinn kemur flott á jakkanum og ég get skrifað inn hjá þér núna, þá losnar þú ekki við mig af síðunni þinni. Kveðja til ykkar Kalla
Skrifa ummæli